top of page
Search

Ræða: Heilbrigðisþjónusta á landsbyggðinni

  • Writer: Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir
    Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir
  • Sep 26, 2024
  • 1 min read


Á þessu kjörtímabili hafa verið stigin stór skref sem styrkja sérstaklega heilbrigðisþjónustu utan höfuðborgarsvæðisins. Má þar nefna fjarheilbrigðisþjónustu og undirbúning fyrir ívilnun í Menntasjóðnum fyrir svæði þar sem vantar sérfræðinga, eins og í heilbrigðiskerfinu. Þegar það verður tilbúið og virkjað getur það munað mjög miklu um allt land og gæti hjálpað okkur við að fá sérfræðinga til að flytja út á land. Staðan er sú að um allt land þarf að fara í endurbætur og framkvæmdir á húsnæði hjá heilbrigðisstofnunum og mögulega þarf að endurskoða þá þjónustu sem er veitt á heilbrigðisstofnunum á dreifbýlli svæðum.

Við viljum búa heilbrigðisstarfsmönnum okkar gott vinnuumhverfi. Við sjáum dæmi um að það eru sjúkrabílaskýli þar sem hefur þurft að brjóta úr veggjum til að koma nútímasjúkrabílum fyrir. Á sumum landsvæðum er heimahjúkrun enn ekki til staðar og stundum þurfa foreldrar að ferðast langar vegalengdir til að fara í mæðravernd og ungbarnavernd. Einnig vitum við að hægt væri að nýta húsnæði heilbrigðisstofnana mun betur sums staðar og jafnvel samnýta með öðrum opinberum stofnunum. Við sem búum úti á landi finnum vel fyrir því að mannauðurinn í heilbrigðiskerfinu, sem er til staðar, er mjög góður. En við þurfum að sjá til þess að vinnuumhverfi þeirra standist nútímakröfur og því er úrbóta þörf á mörgum heilsugæslum.

Ég vil þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir hafa tekið vel í ábendingar mínar varðandi úrbætur sem þarf að fara í á heilsugæslum í kjördæminu. Heilbrigðismál skipta okkur öll miklu máli og því þurfum við stöðugt að hafa augun á boltanum til að tryggja góða þjónustu, gott vinnuumhverfi og aðstöðu fyrir heilbrigðisþjónustu um allt land.

Comments


Commenting on this post isn't available anymore. Contact the site owner for more info.
bottom of page