top of page
Search
  • Writer's pictureLilja Rannveig Sigurgeirsdóttir

Jómfrúarræða á Alþingi


Hæstv. forseti. Hér er ég komin í dag til að vekja athygli á vandamáli sem hefur verið til staðar í mörg ár. Það er vandamál framhaldsskólanema af landsbyggðinni sem flytja á höfuðborgarsvæðið til að stunda nám. Staðreyndin er sú að 17 af framhaldsskólum landsins eru á höfuðborgarsvæðinu. Það er mjög margt ungt fólk sem kemur af landsbyggðinni til að stunda nám en lendir á vegg. Það er nefnilega ekki neitt húsnæði í boði fyrir það.


Þeir nemendagarðar sem eru á höfuðborgarsvæðinu eru ætlaðir fyrir háskólanema. Því reyna mjög margir nemendur að flytja inn á vinafólk eða ættingja og sumir reyna fyrir sér á leigumarkaðinum, en sá frumskógur hentar ekki 15–18 ára ungmennum. Því eru sumir sem bregða á það ráð að hætta í námi eða skipta um námsbraut og það bitnar gjarnan á iðnnámi. Þetta á ekki að vera svona. Ungmenni eiga rétt á að stunda það nám sem þau vilja. Húsnæðismál eiga ekki að vera vandamál fyrir þennan aldurshóp og ég er nokkuð viss um að foreldrar vilji ekki senda börnin sín í slíkar óvissuaðstæður.


Hæstv. forseti. Ég tel nauðsynlegt að komið verði á fót heimavist á höfuðborgarsvæðinu fyrir framhaldsskólanema af landsbyggðinni. Það myndi opna möguleika margra nemenda og einnig vera leið til að auka jafnrétti nemenda á Íslandi, því að allir eiga rétt á sama námi óháð því hvaðan þeir koma.


Sú sem hér stendur leggur því í dag fram tillögu til þingsályktunar um heimavist á höfuðborgarsvæðinu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)





83 views0 comments

Recent Posts

See All
Post: Blog2_Post
bottom of page