top of page
Search
Writer's pictureLilja Rannveig Sigurgeirsdóttir

Ræða: Staða fjarnáms í háskólum



Hæstv. forseti. Í vikunni fékk ég svar frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn minni um fjölda nemenda í háskólum á Íslandi og um framboð á fjarnámi. Niðurstöðurnar eru skýrar; það er landfræðilegur munur á viðhorfi og framboði til fjarnáms á háskólastigi. Ef við horfum á hvern háskóla fyrir sig verð ég að byrja á því að hrósa Háskólanum á Bifröst og Háskólanum á Akureyri fyrir að bjóða upp á alla sína áfanga í fjarnámi. Einnig eru um 70% nemenda í Landbúnaðarháskólanum skráð í fjarnám og í Háskólanum á Hólum er hægt að stunda fjarnám í öllum bóklegum áföngum. Þetta er vel hægt. Þetta er bara spurning um viðhorf. Í skólunum á höfuðborgarsvæðinu, Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Listaháskóla Íslands, eru rúmlega 80% allra áfanga á háskólastigi sem í boði eru á landinu. Af þeim áföngum er einungis hægt að taka 11% í fjarnámi. Viðhorfsbreytinga er þörf. Við viljum hafa búsetu hringinn í kringum landið og við eigum ekki að þurfa að neyða fólk til að flytjast búferlaflutningum til þess eins að stunda nám nema það sé nauðsynlegt fyrir námsframvindu, eins oft í verklegum fögum. Þess má geta að þetta er líka stórt lýðheilsumál. Rannsóknir sýna að skert aðgengi að menntun getur leitt til verri heilsu. Aukið aðgengi að menntun er eitt af verkfærum okkar til að auka jöfnuð í landinu og fjarnám er ein besta leiðin til þess. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)

0 views0 comments

Recent Posts

See All

Fyrirspurn: Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Fyrirspurn til heilbrigðisráðherra um Heilbrigðisstofnun Vesturlands.     1.    Hversu margir íbúar voru skráðir á hverja heilsugæslustöð...

Fyrirspurn: Kvíabryggja

Fyrirspurn til dómsmálaráðherra um Kvíabryggju.     Hyggst ráðherra ráðast í aðgerðir til að bæta aðstæður á Kvíabryggju, t.d. með...

Comments


bottom of page