top of page
Search
Writer's pictureLilja Rannveig Sigurgeirsdóttir

Ræða: Símasamband



Það er okkur flestum eðlislægt að hringja eða svara símanum. Hér á landi eru aftur og aftur á móti margir sem geta það ekki heima hjá sér eða á svæðinu í kringum heimili sitt sökum lélegs símasambands. Þau lenda t.d. í vandræðum með að virkja rafræn skilríki því það krefst þess að viðkomandi sé í símasambandi og því þurfa þau að ferðast frá heimili sínu til að vinna að ýmsu sem mörg okkar telja sjálfsagt. Það að vera í góðu símasambandi snýst ekki einungis um hentugleika heldur er þetta fyrst og fremst öryggismál, bæði innan sem utan heimilis. Það er ekki einungis mikilvægt að huga að góðu símasambandi á heimili fólks því á vegum landsins eru líka margir staðir þar sem er lítið eða ekkert símasamband og það hefur margoft skapað mjög erfiðar aðstæður vegna slysa eða annarra vandræða sem koma upp. Það var því mjög gott að sjá fréttir vikunnar þar sem samið var um að byggja upp 24 fjarskiptasenda við stofnvegi á Vestfjörðum. Sú aðgerð skiptir miklu máli fyrir öryggi fólks á vegum landsins sem og þeirra sem búa í nágrenni við sendana. Meðan við fögnum því höldum við samt áfram að þrýsta á frekari uppbyggingu við stofnvegi um allt land sem og tengivegi og heimili fólks. Sjálf hefði ég viljað að áherslan hefði fyrst verið lögð á að byggja upp símasamband við heimili fólks en ég fagna þó öllum þeim framförum sem eiga sér stað í fjarskiptamálum á Íslandi því að það skiptir mjög miklu máli að vera í góðu sambandi

0 views0 comments

Recent Posts

See All

Fyrirspurn: Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Fyrirspurn til heilbrigðisráðherra um Heilbrigðisstofnun Vesturlands.     1.    Hversu margir íbúar voru skráðir á hverja heilsugæslustöð...

Fyrirspurn: Kvíabryggja

Fyrirspurn til dómsmálaráðherra um Kvíabryggju.     Hyggst ráðherra ráðast í aðgerðir til að bæta aðstæður á Kvíabryggju, t.d. með...

Comments


bottom of page