top of page
Search
Writer's pictureLilja Rannveig Sigurgeirsdóttir

Ræða: Gervigreind



Hæstv. forseti. Gervigreindin er og hefur verið í stöðugri þróun síðustu ár. Margir kostir fylgja þeirri þróun en gervigreindin hefur nýst til að auka lífsgæði, leysa flókin verkefni og vinna í þágu einstaklinga og félaga. Gervigreindin er mögnuð. Hún getur kennt sér sjálfri. Hún getur aflað upplýsinga og nýtt sér þann lærdóm við að leysa verkefni á ógnarhraða. Hún er farin að vera svo sannfærandi að það er oft erfitt að gera sér grein fyrir því hvað er gert af gervigreind og hvað er gert af manneskju, svo sem raddir, myndir og jafnvel tónlist.

Það er því augljóst að það þarf að stíga varlega til jarðar og þróa og nýta gervigreindina á réttan máta. Nú þegar hafa mjög margir áhyggjur af þessari þróun. Löggjafar alls staðar um heiminn eiga enn eftir að mynda umgjörð og reglur um þróun og beitingu gervigreindar. Það er mikilvægt að Ísland verði ekki eftirbátur annarra ríkja við að skapa slíka umgjörð. Þróun gervigreindarinnar er orðin það hröð að forystufólk í tækniiðnaðinum hefur varað við mögulegum eftirköstum. Sérfræðingar og hugsjónafólk á sviði tækninnar hafa birt opið bréf þar sem mælt er með sex mánaða hléi á frekari þróun gervigreindarinnar til að veita löggjöfum frekari tækifæri til að skapa umgjörðina.

Gervigreindin hefur oft birst sem boðberi hamfara í ýmsu afþreyingarefni en áhyggjurnar núna eru annars efnis. Það er nefnilega frekari hætta á aukinni upplýsingaóreiðu, fölsun efnis, sem í raun á sér þegar stað, og fækkun starfa. Við þurfum að mynda lagalega umgjörð um þróun og notkun gervigreindar í sífellt stafrænni heimi. Gervigreindin veitir okkur tækifæri og áskoranir sem við þurfum að vera reiðubúin fyrir.

0 views0 comments

Recent Posts

See All

Fyrirspurn: Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Fyrirspurn til heilbrigðisráðherra um Heilbrigðisstofnun Vesturlands.     1.    Hversu margir íbúar voru skráðir á hverja heilsugæslustöð...

Fyrirspurn: Kvíabryggja

Fyrirspurn til dómsmálaráðherra um Kvíabryggju.     Hyggst ráðherra ráðast í aðgerðir til að bæta aðstæður á Kvíabryggju, t.d. með...

Comments


bottom of page