-Greinin birtist 26. október 2022 á Vísi-
Þegar fólk lendir á sjéns, þá er mikilvægt að hafa nokkra hluti á hreinu: Eru allir til í þetta? Hvar eru getnaðarvarnirnar?
Getnaðarvarnir gegna margvíslegum tilgangi. Eins og nafn þeirra segir til um - eiga þær að koma í veg fyrir getnað - en margar aðrar ástæður liggja að baki þess að fólk notar getnaðarvarnir. Sumar þeirra minnka líkur á kynsjúkdómum, aðrar hafa áhrif á hormónastarfsemi og veita fólki meira frelsi yfir sínum eigin líkama.
Fríar getnaðarvarnir
Ég vil að getnaðarvarnir verði ókeypis fyrir einstaklinga sem eru yngri en 25 ára og hef lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis á Alþingi ásamt 11 öðrum þingmönnum.
Einhverjir spyrja sig eflaust hvers vegna? En svarið er einfalt.
Getnaðarvarnir skipta miklu máli fyrir kynheilbrigði einstaklinga en samkvæmt skýrslum fer notkun smokks og annarra varna dvínandi meðal ungs fólks sem leiðir af sér að tilfellum kynsjúkdóma fer fjölgandi . Auðséð er að framangreint getur haft margs konar afleiðingar og því er mikilvægt að koma til móts við ungt fólk sem mögulega hefur ekki efni á getnaðarvörnum. Ungt fólk á að hafa þann möguleika að geta notað getnaðarvarnir án þess að þurfa að hafa áhyggjur af kostnaði.
Önnur Evrópulönd eru að gera þetta
Í fjölda ríkja, sem við berum okkur helst saman við, eru getnaðarvarnir ókeypis. Þó er mismunandi hvaða verjur það eru sem eru aðgengilegar án endurgjalds og hverjum þær eru aðgengilegar með tilliti til aldurs, kyns o.fl. Víða í Evrópu eru getnaðarvarnir aðgengilegar ungmennum þeim að kostnaðarlausu, þar á meðal í Bretlandi, Noregi, Þýskalandi og Frakklandi. Ef við skoðum svo nánara dæmi frá Frakklandi þá voru getnaðarvarnir nýlega gerðar ókeypis fyrir konur sem eru yngri en 25 ára. Meðal röksemda ríkisstjórnar Frakklands fyrir þeirri aðgerð voru áhyggjur um að konur hætti að nota getnaðarvarnir af fjárhagslegum ástæðum.
Vert er að minnast á skýrslu alþjóðlegu rannsóknarinnar Heilsa og líðan skólabarna (e. Health Behaviour in School-Aged Children), sem gerð hefur verið hér á landi frá árinu 2006. Þar kom fram í síðustu könnun að meðal 15 ára ungmenna í Evrópu og Norður-Ameríku segist einn af hverjum fjórum strákum og ein af hverjum sex stelpum hafa stundað kynlíf. Þar kom einnig fram að notkun getnaðarvarna hefði farið minnkandi síðastliðið ár, sem er mikið áhyggjuefni.
Kynheilbrigði
Kynsjúkdómar dreifast auðveldlega milli einstaklinga við samfarir og það getur tekið langan tíma fyrir einkenni þeirra að koma í ljós. Stundum koma þau aldrei í ljós á áberandi hátt og því þurfa einstaklingar að huga að kynheilbrigði í hvívetna, nota verjur og fara reglulega í skoðun ef tilefni er til þess. Kynsjúkdómur getur haft neikvæð áhrif á lífsgæði einstaklings til lífstíðar. Sumir þeirra fylgja viðkomandi alla ævi. Þeir geta leitt til ófrjósemi og ýmissa veikinda.
Ungt fólk á að geta stuðlað að kynheilbrigði og spornað gegn óskipulögðum barneignum án þess að þurfa að hafa fjárhagslegar áhyggjur.
Kynheilbrigði er nefnilega lýðheilsumál.
コメント