Fyrirspurn til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um kostnað vegna fjar- og staðnáms á háskólastigi.
1. Hve margir nemendur voru skráðir í nám í háskólum landsins á haustönn 2022? Svar óskast sundurliðað eftir skólum, deildum og hvort nemendur voru í fjar- eða staðnámi.
2. Hver var kostnaður Háskóla Íslands á hvern nemanda í fjarnámi samanborið við hvern nemanda í staðnámi á árunum 2012–2022?
3. Hvaða aðgerðir sér ráðherra fyrir sér að hægt verði að ráðast í til að auka enn frekar framboð á fjarnámi á háskólastigi?
Comments